Fréttasafn
Fjöldi refsilagabrota undir meðaltali
Vegna rangs fréttaflutnings DV um að rannsókn sýni að það séu „flestir glæpir í Kópavoginum“ áréttar lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins að fjöldi hegningarlagabrota miðað við íbúafjölda í bæjarfélaginu sé undir meðaltali.Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur látið birta eftirfarandi texta á vef lögreglunnar:
„Í ljósi fréttar í DV þann 22. nóvember 2007 um afbrot á höfuðborgarsvæðinu vill lögreglustjórinn á höfðuborgarsvæðinu árétta að ekki kemur fram í skýrslunni að afbrot séu tíðust í Kópavogi eins og fyrirsögn fréttarinnar vísar til. Í skýrslunni kemur þvert á móti fram að þegar fjöldi hegningarlagabrota er skoðaður miðað við íbúafjölda þá eru hegningarlagabrot undir meðaltali í Kópavogi miðað við önnur svæði umdæmisins. Sama á við þegar einstaka brot eru skoðuð, að frátöldum fíkniefnabrotum og nytjastuldum þar sem fjöldi brota í Kópavogi miðað við íbúafjölda er rétt fyrir ofan meðaltal. Íbúar svæðisins eru hvattir til að kynna sér efni skýrslunnar nánar en hana má nálgast hér.“
Í frétt lögreglunnar um fund sem hún hélt nýlega með bæjarfulltrúum og ýmsum starfsmönnum bæjarins um stöðu og þróun mála segir að „ástandið í Kópavogi [sé] um margt mjög gott“. Til dæmis megi nefna einstaklega öflugt foreldrarölt og nágrannavörslu í einu hverfa bæjarins sem sé tilraunaverkefni til eins árs. Auðgunarbrot komi mikið inn á borð svæðisstöðvar lögreglunnar en þar muni mestu um fjölmargar verslanir í Smáralind og við Smáratorg en á þessa stöðum sé ósjaldan óskað eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðarmála.
Verslanakjarnar eru óvenjulega stórir í Kópavogi miðað við íbúafjölda en þangað sækir fólk af öllu höfuðborgarsvæðinu og víðar að. Búðarhnupl er algengt og hefur mikil áhrif á tölfræðina um tíðni afbrota á svæðinu. Þrátt fyrir það eru refsiverð brot færri en í meðallagi í Kópavogi. Í 24 stundum (og raunar í grein DV líka) er tekið fram að flest brot séu framin í miðborginni.Snemma á næsta ári er fyrirhugað að halda opinn íbúafund þar sem löggæslumál í Kópavogi verða til umfjöllunar.
