Fréttasafn
Brugðist við manneklu í Sunnuhlíð
Styrknum er ætlað að standa undir þeim umframkostnaði sem aðkeyptur vinnukraftur hefur í för með sér. Styrkurinn er veittur í 6 mánuði en fellur niður ef Sunnuhlíð nær að manna þær stöður sem starfsfólk vantar í.
Vegna manneklu hafa átta hjúkrunarrými ekki verið nýtt í Sunnuhlíð og við þær aðstæður fær hjúkrunarheimilið ekki fjárveitingu frá ríkinu fyrir þau rými.
„Ekki þarf að tíunda þá þörf sem er almennt fyrir hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða og er þessi staða því verulega bagaleg og raunar óásættanleg,“ segir í tillögu þeirri sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær. Eina lausnin sé aðkeypt þjónusta hjúkrunarfræðinga. „Slíkt kallar á talsvert umframfjármagn sem Sunnuhlíð hefur ekki yfir að ráða.“
Styrkurinn úr bæjarsjóði Kópavogs nemur samtals að hámarki 2,4 milljónum króna. Félagsmálastjóra hefur verið falið að ganga frá samkomulagi þar um.
