Frá Heimsenda í Guðmundarlund
Umhverfisráð Kópavogs stendur fyrir síðsumarsrölti til að kynna framtíðarskipulag og náttúrufar á svæðinu frá Heimsenda (hesthúsahverfinu) upp í Guðmundarlund fimmtudaginn 4. september næstkomandi kl. 17.30.
Gengið verður með valinkunnum fróðleiksboltum sem fræða göngufólk um það sem fyrir augu ber. Þeir eru:
• Birgir Hlynur Sigurðsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Kópavogsbær
• Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogsbær
• Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogsbær
Þá verður plöntusafn Hermanns Lundholm í Guðmundarlundi skoðað sérstaklega.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og gos í Guðmundarlundi.
Þetta er gott tækifæri til að kynna sér nokkrar af náttúruperlum Kópavogs, bæði sögulegar og náttúrulegar, og eru allir hvattir til að koma og eiga góða stund í fallegu umhverfi undir leiðsögn staðkunnugra leiðsögumanna.
Gangan hefst við hestamiðstöðina Hrímfaxa í hesthúsahverfi Heimsenda. Þeim sem vilja er boðið að aka með rútu frá Teiti Jónassyni frá Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi, upp í Heimsenda kl. 17.10.
