Fréttasafn
Lágur þrýstingur á heitu vatni
Vegna bilunar, sem truflar rekstur Nesjavallavirkjunar, hefur þrýstingur á heitu vatni fallið sums staðar á höfuðborgarsvæðinu og gætir þess enn í þeim hlutum Kópavogs sem hæst standa. Búist er við að fullum þrýstingi verði náð mjög fljótlega.Samkvæmt frétt frá Orkuveitu Reykjavíkur leiddi bilun á rafmagnsstreng Landsnets milli Nesjavallavirkjunar og aðveitustöðvarinnar við Korpu til þess að truflanir urðu á rekstri hitaveitudæla Orkuveitunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis. Þá olli bilunin truflunum á rekstri Nesjavallavirkjunar. Samanlagt hefur þetta valdið því að þrýstingur á heitu vatni féll á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu nú undir kvöld. Vel gengur að vinna bug á þessu, segir í fréttatilkynningu Orkuveitunnar.
Því er svo við ofangreinda frétt að bæta að fullur þrýstingur var kominn á aðfaranótt sunnudagsins.
