Fréttasafn
Uppselt á fyrstu Töfratónleikana í Salnum!
Miðar seldust upp á tónleika hinnar heimsfrægu sópransöngkonu Inessu Galante í Salnum um helgina sem verður að teljast einn af stórviðburðum starfsársins. Miðum fer óðum fækkandi á aðra viðburði.Nýtt starfsár Salarins hefst vel því að uppselt var á „töfratónleika“ sópransöngkonunnar Inessu Galante á laugardaginn var og einnig er uppselt á tónleika Kristins Sigurmundssonar bassa í janúar. Miðum fer mjög fækkandi á Jólatónleika fyrir stórfjölskylduna og Nýárstónleikana með Gissuri Páli Gissurarsyni og Salonsveit Sigurðar Ingva. Sama máli gegnir um útgáfutónleika Diddúar og Terem-kvartettsins í nóvember og ýmsa fleiri viðburði en miðarnir seljast af krafti.
Það er því um að gera að tryggja sér miða hjá Salnum tímanlega og njóta frábærrar tónlistaveislu í allan vetur.
