Fréttasafn
Gersemar Íslands og Rússlands í Salnum
Terem kvartettinn, þjóðargersemi Rússlands að mati gagnrýnenda sem auk þess að hafa fengið blessun páfa og móður Theresu, verður ásamt þjóðargersemi Íslands, Diddú, í Salnum laugardaginn næsta, 15. nóvember.Uppselt er á fyrri tónleikana kl. 17 en vegna mikillar eftirspurnar hefur aukatónleikum verið bætt við í Salnum kl. 20 sama dag. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, kom nýverið heim frá Pétursborg þar sem hún tók upp efni á plötu ásamt kvartettnum, Terem og Diddú, en þetta eru einmitt útgáfutónleikar plötunnar.
„Þeir eru algjörar þjóðhetjur í sínu heimalandi og opnuðu fyrir mér leið inn í helgidóm Rússlands. Ég var hjá þeim í hálfan mánuð í maí við æfingar og upptökur, en við tókum meðal annars upp lög eftir Sigfús Halldórsson, Freymóð Jóhannsson og Magnús Blöndal Jóhannsson að þeirra ósk. Síðan tókum við einnig upp rússneskt, ítalskt og spænskt lag, en öll hafa þau sama karakter og þetta er svona suðræn sígaunatónlist,“ segir Diddú.
Þessi fjörugi og lífsglaði tónlistarhópur kom fyrst fram á Íslandi á rússneskri menningarhátíð í Kópavogi fyrir nokkrum árum og sló þá eftirminnilega í gegn. Terem-kvartettinn var stofnaður í Pétursborg árið 1986 en hefur frá upphafi fetað ótroðnar slóðir í tónlistarflutningi sínum. Sköpunargleði hópsins er annáluð um allan heim sem og agi þeirra, kæti og leikræn tilþrif.
Segja má að meðlimir Terem-kvartettsins, þeir Andrey Konstantinov (sópran-domra), Alexey Barshchev (alt-domra), Andrey Smirnov (bayan-harmónika) og Mikhail Dzyudze (balalaika), hafi fundið upp nýjar aðferðir við að laða fram hvers kyns tónlist úr rússneskum alþýðuhljóðfærum. Kvartettinn hefur nú í tuttugu ár fært hlustendum um allan heim hitann og ástríðuna sem sprottin er úr rússneskri þjóðarsál. Terem-kvartettinn hefur komið fram með stórstjörnum tónlistarheimsins eins og Peter Gabriel, Bobby McFerrin, liðsmönnum Led Zeppelin, Nigel Kennedy fiðluleikara og mörgum öðrum nafnkunnum tónlistarmönnum.
