Danssýning í Smáranum
Gleðin og fegurðin var við völd í íþróttahúsinu Smáranum á sunnudag þar sem fram fór nemendasýning Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. „Nú eru að mörgu leyti erfiðir tímar og allt sem lyftir geði okkar og léttir lundina fær nýtt, eða á ég að segja endurnýjað, gildi,“ sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í ávarpi af þessu tilefni. „Þess vegna er svo gaman að sjá hve margir áhugasamir þátttakendur eru hér á nemendasýningunni.“
Danssýningin var vel heppnuð og glæsileg sem endranær. Fjölmörg danspör á öllum aldri sýndu fjölbreytta dansa fyrir fjölda gesta sem lögðu leið sína í Smárann.
„Dans er svo nátengdur lífinu sjálfu og eðlislægur mannskepnunni að það er erfitt að ákveða hvort hann eigi að flokkast undir list og listsköpun, tjáningarform, íþróttir eða félagslegt atferli. Sennilega er hann sitt lítið af hverju enda þarf ekki að klína merkimiða á alla skapaða hluti,“ sagði Gunnar meðal annars. „Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar hefur verið starfræktur í Kópavogi í rúm 30 ár. Þeir eru ófáir Kópavogsbúarnir sem hafa stigið sín fyrstu dansspor í þeim dansskóla. Eins og dansinn er snar þáttur í menningu
þjóðanna er dansskóli Sigurðar Hákonarsonar snar þáttur í menningu bæjarfélagsins. Um það þarf ekki að fara mörgum orðum. Þangað sækir fólk á öllum aldri, þeir yngstu 4 ára, og alltaf fjölgar í hópnum; mér skilst að þeir séu orðnir um 500 talsins.“
Gunnar sagði að Kópavogsbær væri stoltur af framlagi sínu til íþrótta- og tómstundamála. Í því sambandi mætti nefna að bærinn hefði stutt við dansiðkun með ýmsum hætti.
„Nú í vor var gerður samningur um myndarlegan rekstrarstyrk handa Dansíþróttafélagi Kópavogs en það er starfandi íþróttafélag innan Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar. Nemendur skólans hafa gegnum tíðina náð frábærum árangri í danskeppni bæði heima og erlendis. Rekstarstyrkurinn þýðir að dansfélagið stendur jafnfætis öðrum íþróttafélögum hér í bæ. Niðurgreiðslur á kennslugjöldum barna og unglinga hafa sömuleiðis orðið til að efla danslistina.“
