Fréttasafn

Almenn ánægja með daggæslu í Kópavogi

2.1.2009

97% svarenda í könnun um daggæslu í Kópavogi eru mjög eða frekar ánægð með daggæslu sinna barna.Almenn ánægja ríkir með daggæslu í Kópavogi samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar sem daggæsludeild Félagsþjónustu Kópavogs lætur framkvæma.


Í reglum Kópavogs um daggæslu í heimahúsum er kveðið á um að einu sinni á ári skuli leita eftir viðhorfum foreldra til eigin dagforeldris.

Könnunin í ár var framkvæmd rafrænt í fyrsta skipti. Foreldrum allra barna sem áttu börn í gæslu hjá dagforeldri í Kópavogi í mars var sendur tölvupóstur með vefslóð sem geymdi spurningar um viðhorf til daggæslu.

Alls fengu 124 foreldrar vefslóðina senda og svöruðu alls 94 eða 76% könnuninni. Hlutfall þeirra sem voru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með daggæslu barns síns hjá dagforeldri var 97%, 1% foreldra svöruðu að þeir væru hvorki ánægðir né óánægðir með daggæsluna og 2% foreldra var frekar óánægður.