Fréttasafn
Fyrsta skóflustunga að leiguíbúðum fyrir aldraða
Sjómannadagsráð reisir 95 leiguíbúðir fyrir 60 ára og eldri í Kópavogi. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, tóku í dag, föstudaginn 27. mars, fyrstu skóflustunguna að nýjum leiguíbúðunum við Boðaþing steinsnar frá þjónstumiðstöð sem Kópavogsbær reisir fyrir aldraða í samstarfi við ríkið.Að skóflustungunni lokinni undir fánaborgum við Boðaþing var boðið upp á kaffiveitingar í félagsmiðstöð aldraðra í Gullsmára. Þar kynnti Guðmundur Hallvarðsson framkvæmd Sjómannadagsráðs og Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Hrafnistu, starfsemina en Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, kynnti byggingu þjónustumiðstöðvarinnar.

Alls munu rísa 95 þjónustu- og öryggisíbúðir á vegum Sjómannadagsráðs. Framkvæmdir við fyrri áfanga, samtals 48 íbúðir, hefjast nú í vor. Boðaþing liggur á mörkum bæjar og sveitar og þar er aðgengi að göngu- og reiðstígum sem liggja að Elliðavatni og í Heiðmörk.
Hönnun og skipulag þjónustu- og öryggisíbúðanna miðast við að aldraðir geti sem lengst haldið eigið heimili og nýtt sér þá þjónustu sem Hrafnista og Kópavogsbær bjóða í Boðaþingi, svo sem fæði, heimilishjálp eða heimahjúkrun. Innangengt verður úr nýju byggingunni yfir í þjónustumiðstöð aldraðra sem Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing 9. Í þjónustumiðstöðinni verður fjölnotasalur með eldhúsi, sundlaug og föndursalur auk þess sem þar verður boðið upp á sjúkraþjálfun og hár- og fótsnyrtingu svo að eitthvað sé nefnt.
Auk þess að reka þjónustumiðstöðina mun Hrafnista sjá um rekstur hjúkrunarheimilis sem Kópavogsbær er að reisa við Boðaþing í samvinnu við ríkið.
Þjónustu- og öryggisíbúðirnar verða vandaðar að allri gerð og skipulag þeirra og innréttingar taka mið af þörfum aldraða. Dyraop verða breið, lyftur stórar og rennihurðir inn á bað- og svefnherbergi. Sérstakur öryggisdúkur verður á gólfum baðherbergja og öryggishnappur í hverri íbúð. Íbúðunum fylgja svalir sem eru yfirbyggðar en auðvelt er að opna svalirnar nánast að fullu. Í húsinu verða bæði tveggja og þriggja herbergja íbúðir 60 til 90 fermetrar að flatarmáli, eða 88 til 131 fermetri þegar tillit er tekið til sameignar og geymslna. Lóðin verður fullfrágengin þegar húsið verður tekið í notkun. Áhersla verður lögð á góða útilýsingu, bílastæði verða malbikuð og gangstígar hellulagðir og verða allar helstu gönguleiðir á lóðinni með snjóbræðslu.
Áætlað er að bjóða heildarframkvæmdina út í almennu útboði á næstunni og stefnt er að því að jarðvinna hefjist strax í vor og almennar framkvæmdir um mitt sumar 2009. Húsið verður byggt í tveimur áföngum og verklok fyrsta áfanga, þar sem eru 48 íbúðir, eru áætluð í september/október 2010. Hönnuðir hússins eru THG arkitektar, Verkfræðiþjónustan ehf. og VSÓ ráðgjöf.
Á morgun, þann 28. mars eru sjötíu ár liðin frá því að stefnuskrárnefnd Sjómannadagsráðs skilaði tillögum ásamt langri álitsgerð um framtíðaráform samtakanna sem væru „að safna fé til stofnunar elli- og hvíldarheimilis fyrir aldraða farmenn og fiskimenn“. Þessum tillögum hefur verið vel fylgt eftir sem sjá má þá litið er yfir farinn veg Sjómannadagsráðs.
