Fréttasafn

Góðir gestir frá vinabænum Klakksvík í heimsókn

6.10.2010

Hópur góðra gesta frá Klakksvík í Færeyjum, vinabæ Kópavogs, heimsótti bæinn um helgina en þar var á ferðinni kór sem heitir 17 söngvarar. Kórinn var hér á kórferðalagi og notaði tækifærið til að heimsækja vinabæinn sinn.


Kórinn söng nokkur Fúsa-lög í bland við færeysk lög í Tónlistarsafni Íslands, skoðaði Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Þá söng hann fyrir heimilismenn í Boðaþingi.

Á sunnudag heilsaði Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, upp á kórinn.

Stjórnandi færeyska kórsins heitir Jógvan við Keldu en hann er mikill áhugamaður um tónlist Sigfúsar Halldórssonar, Fúsa. Hann hefur margsinnis heimsótt Ísland enda fyrirverandi bæjarstjóri Klakksvíkur.

Núverandi bæjarstjóri Klakksvíkur er dóttir hans Gunvá frá Keldu og hittust þær Guðrún Pálsdóttir í Klakksvík í sumar.

Á vef Tónlistarsafns Íslands má sjá upptökur af kórsöngnum.