Fréttasafn

Kópavogur tekur við nýjum íþróttamannvirkjum í Kórnum

16.4.2010

Kópavogsbær tók í dag formlega við nýjum íþróttamannvirkjum í Kórnum í Vatnsendahverfi af Knattspyrnuakademíu Íslands. Þar með eignast bærinn um 6.900 fermetra íþróttaaðstöðu í Vallakór til viðbótar við þá aðstöðu sem fyrir var.


Logi Ólafsson, fulltrúi Knattspyrnuakademíu Íslands afhenti Ármanni Kr. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, lyklana að íþróttaaðstöðunni við formlega athöfn í nýja íþróttasalnum í Kórnum.

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, sagði meðal annars við þetta tækifæri að Kópavogur hefði lagt mikla áherslu á uppbyggingu glæsilegra íþróttamannvirkja síðustu tíu til fimmtán árin. Sú mikla uppbygging skipaði Kópavogi í fremstu röð og fá bæjarfélög byðu upp á jafn góða íþróttaaðstöðu.

Nýju íþróttamannvirkin eru íþróttasalur, sem rúmar tvo löglega keppnisvelli fyrir handknattleiki, innanhússsundlaug og líkamsræktaraðstaða. Íþróttasalurinn er tilbúinn til notkunar en vonast er til að sundlaugin og líkamsræktin verði teknar í notkun innan fárra ára.

Samkvæmt samningi sem Kópavogsbær og Knattspyrnuakademía Íslands gerðu með sér árið 2005 átti Kópavogur að taka mannvirkin á leigu til 25 ára og eignast 50% hlut í þeim á tímabilinu. Vegna efnahagshrunsins breyttust forsendur hins vegar vegna aukins byggingakostnaðar og taldi Knattspyrnuakademían fyrirsjáanlegt að til hækkunar kæmi á leiguverði samkvæmt ákvæðum samningsins.

Samningaviðræður hófust því milli aðila sem lauk með kaupum Kópavogsbæjar á íþróttamannvirkjunum. Það var samþykkt í bæjarstjórn 13. apríl sl. Kaupverðið er rúmlega 1,6 milljarðar króna sem greiðist með skuldabréfi til 25 ára. Greiðslubyrðin verður lægri fyrir Kópavogsbæ með kaupunum en sem leigugreiðslum hefði numið. Þetta þóttu því hagstæðir samningar fyrir bæinn í ljósi aðstæðna.

Íþróttahúsið verður notað til íþróttakennslu barna í Hörðuvallaskóla og Vatnsendaskóla. Íþróttafélögin í Kópavogi munu sömuleiðis nýta húsið. Fyrir er í Vallakór knatthús ásamt búningsklefum og íþróttarými, gervigrasvöllur og tveir grasvellir.

Eftir athöfnina í dag tóku nemendur Hörðuvallaskóla og Vatnsendaskóla íþróttasalinn formlega í notkun og hófu að æfa íþróttir.

Nánari upplýsingar veitir Jón Júlíusson, deildarstjóri íþróttadeildar, í síma 896-6485.


Logi Ólafsson, fulltrúi Knattspyrnuakademíu Íslands afhenti Ármanni Kr. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, lyklana að íþróttaaðstöðunni við formlega athöfn í nýja íþróttasalnum í Kórnum.