Fréttasafn

Meirihlutinn fallinn samkvæmt fyrstu tölum

29.5.2010

Samkvæmt fyrstu tölum í Kópavogi er meirihlutinn í bæjarstjórn fallinn. Þegar 12.804 atkvæði hafa verið talin er Framsóknarflokkurinn með 841 atkvæði eða 7% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn er með 3.617 atkvæði eða 30,2% atkvæða.

Frjálslyndi flokkurinn er með 87 atkvæði eða 0,7% atkvæða. Samfylkingin er með 3.370 atkvæði eða 28,2% atkvæða. Vinstri græn eru með 1.129 atkvæði eða 9,4% atkvæða. Næst besti flokkurinn er með 1.687 atkvæði eða 14,1% atkvæða. Og listi Kópavogsbúa er með 1.233 atkvæði eða 10,3% atkvæða.

Á kjörskrá eru 21.387 og var kjörsókn 68,8%.

Samkvæmt fyrstu tölum nær Framsóknarflokkurinn ekki inn manni í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjóra bæjarfulltrúa, Samfylkingin þrjá, Næst besti flokkurinn tvo, Vinstri græn einn og listi Kópavogsbúa einn.

Frjálslyndi flokkurinn nær ekki inn manni, samkvæmt fyrstu tölum.