Fréttasafn

Urrari í sjóbúri

30.9.2009

Urrari er í sjóbúri á Náttúrufræðistofu Kópavogs.Urrari (Eutrigla gurnardus) er til sýnis í búri á Náttúrufræðistofu Kópavogs en hann er fallegur og sérstæður fiskur sem fólk hefur sjaldan eða aldrei séð lifandi.



Urrari (Eutrigla gurnardus) er botnfiskur og finnst oftast á 20–150 metra dýpi. Hann lifir meðfram ströndum og á grunnsævi í Evrópu og N-Afríku. Hér við land lifir hann við suður- og vesturströndina allt til Breiðafjarðar. Urrarinn veiddist á línu utarlega í Faxaflóa. Þar sem hann var lítið sár var ákveðið að reyna að koma honum lifandi til greiningar og var töluvert fyrir því haft að koma honum á Náttúrufræðistofuna. Kunna sérfræðingar Náttúrufræðistofu Guðmundi Geirdal og áhöfn hans á Gísla KÓ 10 hinar bestu þakkir fyrir.

Á myndinni má sjá nokkur af helstu einkennum fisksins, meðal annars hina vígalegu broddgeisla í bakuggum og einnig hvernig fiskurinn „stendur“ á hinum ummynduðu eyruggageislum.

Hér má finna frekari upplýsingar um þennan athyglisverða fisk.

Heimildir:
Íslenskir fiskar, 2. útgáfa 1992. Höf. Gunnar jónsson. Bls. 437-438.
www.fishbase.org