Stórfundur kvenna
„Höfum áhrif á bæjarsamfélagið!“ er yfirskrift þessa stórfundar kvenna í Kópavogi og hvatningin að efla konur til starfa í bæjarstjórn, nefndum og ráðum Kópavogs. Fundurinn verður haldinn í Turninum, Smáratorgi, á 20. hæð 25. nóvember næstkomandi.
Á fundi jafnréttisnefndar í október síðastliðnum lagði Una María Óskarsdóttir, formaður nefndarinnar, til að boðað yrði til fundar meðal stjórnmálakvenna í Kópavogi, þ.e. aðal- og varamönnum í bæjarstjórn og aðal- og varamönnum í nefndum og ráðum um aðgerðir til að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn er þó ekki einskorðaður við konur í stjórnmálum í Kópavogi. Allar konur eru velkomnar og aðgangur er ókeypis.
Í auglýsingu jafnréttisnefndar um fundinn segir meðal ananrs að „mikilvægt [sé] að konur komi til jafns við karla að mótun og stjórnun bæjarfélagsins, með því móti [verði] tryggt að þekking og reynsla kvenna nýtist til að gera góðan bæ enn betri“.
Konur eru hvattar til að hafa áhrif á uppbyggingu nærsamfélagsins, s.s. menntamála, íþrótta- og tómstundamála, forvarnamála, menningarmála og umhverfis- og skipulagsmála. Frummælendur eru Una María Óskarsdóttir, formaður jafnréttisnefndar, Framsóknarflokki, Sigurrós Þorgrímsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Guðríður Arnardóttir, oddviti og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Guðbjörg Sveinsdóttir, varabæjarfulltrúi Vinstri grænna. Fundarstjóri verður Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona.
