Fréttasafn

Ljóðstafur Jóns úr Vör

19.1.2010

Jón úr Vör sem ljóðasamkeppnin er kennd við.Næstkomandi fimmtudag, 21. janúar 2010, verður greint frá niðurstöðum og veitt verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör sem lista- og menningarráð Kópavogs efnir til á hverju ári. Verðlaunin eru ávallt afhent á afmælisdegi Jóns úr Vör (1917–2000). Eins og fyrri ár fer verðlaunaafhendingin fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og hefst kl. 20:00.


Ljóðstafur Jóns úr Vör er umfangsmesta samkeppni sinnar tegundar á landinu. Markmiðið með henni er að vekja athygli og auka áhuga á íslenskri ljóðagerð.

Í nóvember síðastliðnum var auglýst eftir ljóðum í ljóðasamkeppnina. Er þetta í níunda sinn sem lista- og menningarráð stendur fyrir slíkri samkeppni, en hugmyndin er upphaflega komin frá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Þátttakendum er gert að skila inn verkum sínum undir dulnefni og fær sigurvegarinn vegleg peningaverðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár auk eignargrips. Að þessu sinni bárust um það bil 300 ljóð í keppnina.

Vinningshafar í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör frá upphafi:

Árið 2002 Hjörtur Pálsson fyrir ljóðið „Nótt frá Svignaskarði“
Árið 2003 var Ljóðstafurinn ekki veittur en þrjú ljóð hlutu viðurkenningu
Árið 2004 Hjörtur Marteinsson fyrir ljóðið „Hvorki hér né ...“
Árið 2005 Linda Vilhjálmsdóttir fyrir ljóðið „Niður“
Árið 2006 Óskar Árni Óskarsson fyrir ljóðið „Í bláu myrkri“
Árið 2007 Guðrún Hannesdóttir fyrir ljóðið „Offors“
Árið 2008 Jónína Leósdóttir fyrir ljóðið „Miðbæjarmynd“
Árið 2009 Anton Helgi Jónsson fyrir ljóðið „Einsöngur án undirleiks“

Í dómnefnd eiga sæti Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur, Sigþrúður Gunnarsdóttir bókmenntafræðingur og Þórarinn Eldjárn rithöfundur, sem er formaður nefndarinnar.

Athöfnin við verðlaunaafhendinguna hefst með ávarpi Sigurrósar Þorgrímsdóttur, formanns lista- og menningarráðs. Þá les núverandi handhafi Ljóðstafsins, Anton Helgi Jónsson, ljóð, Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar flytja íslensk lög og kynntur verður nýr verðlaunahafi Ljóðstafs Jóns úr Vör fyrir árið 2010. Enn fremur verður veitt viðurkenning fyrir eitt ljóð að auki. Dagskránni lýkur með veitingum í boði lista- og menningarráðs í forrými Salarins.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.