Fréttasafn
Hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing opnað
Kaflaskil hafa orðið í húsnæðis- og umönnunarmálum aldraðra með nýju hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Hjúkrunarheimilið verður rekin eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem ekki hefur verið reynd áður hér á landi.Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Kópavogsbær hafa byggt hjúkrunarheimilið og falið reksturinn Sjómannadagsráði, eiganda Hrafnistuheimilanna. Við Boðaþing er jafnframt gert ráð fyrir 95 öryggis- og þjónustuíbúðum í fjölbýlishúsum í nágrenni hjúkrunarheimilisins og verða þær leigðar öldruðum. Naustavör, dótturfyrirtæki Sjómannadagsráðs, reisir þjónustuíbúðirnar í tveimur áföngum og verður fyrri áfanginn með 48 íbúðum tilbúinn til útleigu í lok þessa árs.
Hugmyndafræði
Sú nýja hugmyndafræði sem starfsemin við Boðaþing felur í sér að sameina bestu kosti sjálfstæðrar búsetu við það öryggi sem hjúkrunarheimilin hafa uppá að bjóða. Þessi nýja hugmyndafræði byggir á þátttöku íbúanna sjálfra og aðstandenda þeirra í hinu daglega lífi á heimilinu þar sem starfsfólk og íbúar vinna saman að því að skapa hlýlegt og virkt samfélag. Öll hönnun húsnæðis tekur mið af þessari hugmyndafræði. Hún byggir litlum heimilislegum einingum með eldhúsi og borðstofu í miðju hússins, sem myndar umgjörð um daglegt líf á heimilinu. Persónuleg rými eru stór og björt með sér baðherbergi og te-eldhúsi. Stoðeiningar eru staðsettar í samtengdri þjónustumiðstöð sem Kópavogsbær hefur byggt og verið er að leggja lokahönd á. Má þar nefna endurhæfingu, sundlaug, starfsmannaaðstöðu, dagvistun og mötuneyti.
Fyrri áfangi af tveimur
Næstkomandi mánudag, 22. mars, flytja fyrstu íbúarnir inn á heimilið. Þar með hefst rekstur í fyrri áfanga byggingarinnar, þar sem eru alls rými fyrir 44 einstaklinga. Alls er gert ráð fyrir rýmum fyrir 88 aldraða á hjúkrunarheimilinu og verður seinni áfanginn tekinn í notkun á næstu árum. Við upphaf rekstrarins munu á bilinu 40 til 50 manns starfa á hjúkrunarheimilinu.

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs

Hrafnistukórinn söng nokkur lög.

F.v. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs og Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu.
