Fréttasafn

Kópavogur gerir samning um lánshæfismat

21.5.2010

Kópavogsbær hefur gert samning við lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. um greiningu og mat á lánshæfi sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Ólafur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Reitunar, skrifuðu undir samninginn í vikunni.

Útgefendur á innlendum skuldabréfamarkaði hafa hingað til ekki þurft að gangast undir sérstakt lánshæfismat til að teljast hæfir fyrir þessa fjármögnunarleið.

Kópavogsbær hefur þrátt fyrir það ákveðið að gera þennan samning til að gera fjárfestum kleift að fá álit óháðra aðila á fjármálum bæjarins.

Reitun ehf. er staðbundið lánshæfismatsfyrirtæki og er í eigu IFS greiningar.