Fréttasafn

Nýr vefur fyrir Kópavogsbæ

17.3.2011

Í dag fór í loftið nýr og endurbættur vefur Kópavogsbæjar. Unnið hefur verið að honum í all nokkurn tíma og hafa fjölmargir starfsmenn bæjarins komið að þeirri vinnu. Markmiðið er að gera vef bæjarins meira aðlaðandi og auðveldari í notkun fyrir bæjarbúa.

Á vefnum má finna ýmsar nýjungar svo sem viðburðadagatal og spurningu vikunnar. Þar geta bæjarbúar látið í ljós skoðanir sínar á hinum ýmsum málum sem snerta bæjarfélagið. Fyrsta spurning vikunnar snýr að því hvort gera eigi upp gamla Kópavogsbæinn á Kópavogstúni.

Áfram verður unnið að þróun vefjarins með það að markmiði að hann þjóni þörfum íbúa bæjarins sem allra best.

Þá er unnið að því að koma rafrænum Kópavogi á koppinn þar sem bæjarbúar eiga að geta fylgst betur með umsóknum sínum um ýmsa þjónustu hjá bænum.