Leikskólabörn Kjarrsins áfram í sama húsnæði
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær að endurnýja ekki þjónustusamning við núverandi rekstraraðila leikskólans Kjarrsins ehf. Jafnframt var samþykkt að rekstur skólans yrði færður undir rekstur leikskólans Smárahvamms sem stendur á næstu lóð. Innra starf skólanna verður óbreytt og börn verða ekki flutt á milli húsa. Það þýðir m.ö.o. að leikskólabörn Kjarrsins verða áfram í sama húsnæði.
Með þessu hyggst bærinn hagræða um 25 milljónir á ársgrundvelli. Kjarrið er minnsta rekstrareining leikskóla í Kópavogi og óhagkvæm eining ein og sér. Í ljósi nálægðar við Smárahvamm lá því beint við að ná fram hagræðingu með þessum hætti.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti um miðjan mánuð og funduðu fulltrúar menntasviðs bæjarins í kjölfarið með fulltrúum í foreldraráði og foreldrafélagi Kjarrsins. Ekki reyndist unnt að senda foreldrum póst með upplýsingum um framvindu málsins sökum þess að bærinn hefur ekki aðgang að netfangalista þeirra þar sem skólinn er einkarekinn.
Á fundinum með fulltrúum foreldra var greint frá því að öll börn myndu halda sínum plássum og dvalartíma. Þá væri vonast til þess að sem flestir starfsmenn Kjarrsins myndu þiggja boð um áframhaldandi starf.
Verið er að undirbúa upplýsingafundi með foreldrum og starfsmönnum Kjarrsins sem halda á í byrjun næstu viku.
Ekki er fyrirhugað að sameina rekstur fleiri leikskóla í Kópavogi.

