Fréttasafn

Börn í Kópavogi fá reiðhjólahjálma

28.4.2011

  • hjalmar
    hjalmar

Börn í 1. bekk í Kársnesskóla tóku á móti reiðhjólahjálmum frá Kiwanishreyfingunni og Eimskipafélagi Íslands í vikunni. Það gerðu einnig fleiri börn á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórar voru viðstaddir athöfnina. Gjöfin er liður í því markmiði Kiwanis og Eimskips að öll börn verði örugg í umferðinni.

Stefnt er að því að öll börn í 1. bekk á höfuðborgarsvæðinu fái reiðhjólahjálma gefins í ár. Alls voru 4.200 reiðhjólahjálmar gefnir í fyrra en samtals hafa hátt í 30 þúsund hjálmar verið gefnir á þeim sjö árum sem verkefnið hefur staðið yfir.

Börnin voru að vonum ánægð í vikunni með nýju hjálmana en eftir að þeir höfðu verið afhentir hlýddu þau á tónlist og fengu hressingu. Þá komu nokkrir lögreglumenn og sýndu sína hjálma.

Athöfnin fór fram við Sundaklett í Reykjavík, í höfuðstöðvum Eimskips.