Busl og bænir í Salalaug
Sunnudagsskóli Lindakirkju nk. sunnudag fer fram í Salalaug. Hann hefst á hefðbundnum tíma kl. 11:00. Umsjón með stundinni hefur séra Guðmundur Karl Brynjarsson. Hann nýtur aðstoðar sunnudagsskólakennara Lindakirkju. Áætlað er að stundin taki um 25 mínútur.
Þetta er í annað sinn sem sunnudagsskólinn fer fram í Salalaug. Fyrir ári hófu forsvarsmenn Salalaugar og prestarnir í Lindakirkju samstarf um að sunnudagaskóli kirkjunnar færi fram í innilaug sundlaugarinnar.
Athöfnin heppnaðist mjög vel og vakti kátínu og gleði jafnt hjá börnunum sem og foreldrum þeirra. Dagskrá sunnudagsskólans var hefðbundin, skemmtileg og uppbyggjandi stund með hreyfisöngvum, biblíusögum, busli og bænum.
Stefnt er að því að sunnudagsskólastund í Salalaug verði árviss viðburður hér eftir.
.
