Fréttasafn

Heimgreiðslur afnumdar í haust

21.6.2011

  • Barbara Árnason
    Barbara Árnason
    Barnamynd eftir Barböru Árnason.

Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að fella niður heimgreiðslur til foreldra frá og með 1. september 2011. Það þýðir að síðustu greiðslurnar verða inntar af hendi 1. júlí vegna júlímánaðar en heimgreiðslur ná ekki til ágústmánaðar.

Kópavogur er eitt fárra sveitarfélaga sem boðið hefur heimgreiðslur í ár en þær greiðslur eru ekki lögbundnar.

Í stað heimgreiðslna hyggjast bæjaryfirvöld leggja meiri áherslu á að fjölga rýmum á leikskólum og gera átak í fjölgun dagforeldra.

Þjónusta dagforeldra verður áfram niðurgreidd af Kópavogsbæ um allt að 35 þúsund krónur á mánuði.

Foreldrar sem þiggja heimgreiðslur hafa þegar verið upplýstir um þessar breytingar.