Fréttasafn

Miðbæjarstemmning í Hamraborginni

4.9.2011

  • Hamraborgarhátíð
    Hamraborgarhátíð
Fjöldi Kópavogsbúa naut veðurblíðunnar á Hamraborgarhátíð í Kópavogi í gær. Hamraborginni var breytt í göngugötu, sölutjöldum var slegið upp og um 120 manns seldu gamalt dót og nýtt beint úr skottinu á bílnum sínum.
Menningarstofnanir bæjarins voru opnaðar upp á gátt og verslanir og veitingastaðir voru með ýmis tilboð á vörum sínum og þjónustu. Þá kynntu íþróttafélög starfsemi sína.
 
Sannkölluð miðbæjarstemmning ríkti því í Hamraborginni.
 
Hamraborgarhátíðin er haldin á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við verslanir og önnur fyrirtæki á svæðinu. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin.