Athugasemdavefur fyrir hjólreiðastíga í Kópavogi
Í tilefni evrópskrar samgönguviku opnar Kópavogur nýjan athugasemdavef um hjólastíga í Kópavogi. Sem liður í opinni stjórnsýslu og samvinnu við íbúa bæjarins óskar bærinn nú eftir ábendingum um net hjólastíga sem gerð hefur verið tillaga um. Athugasemdafrestur er til 16. október 2011.
Kópavogur stefnir að því að auka veg hjólreiða sem samgöngumáta í sveitarfélaginu þannig að hjólreiðar séu aðgengilegur, skilvirkur og öruggur ferðamáti í bænum. Mikilvægt er að Kópavogsbúar og þeir sem eiga erindi í Kópavog geti komist leiðar sinnar á hjóli á auðveldan og öruggan hátt.
Sem liður í þeirri vinnu, vinnur Kópavogur nú að gerð hjólreiðaáætlunar og í sumar var gerð notendakönnun meðal hjólreiðamanna og talning á hjólandi og gangandi vegfarendum á völdum göngustígum í Kópavogi.
Bærinn óskar nú sérstaklega eftir ábendingum um þær leiðir sem lagðar hafa verið til sem hjólreiðastíga.
