Vel heppnuð sjávarútvegssýning í Kópavogi
Talið er að yfir tíu þúsund manns hafi lagt leið sína á Íslensku sjávarútvegssýninguna sem haldin var í Smáranum og Fífunni í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin í Kópavogi og hefur bærinn stutt hana með ýmsum hætti.
Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri og Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra fluttu ávörp við opnun sýningarinnar í Smáraskóla.
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru síðan afhent við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs, á fimmtudagskvöld og sagði Guðrún við það tækifæri að umgjörðin gæti ekki verið betri. Á Borgarholtinu hefði bærinn reist yfir menningarstofnanir sínar glæsileg húsakynni eins og sjá mætti af Gerðarsafni. Það væri auk þess meðal bestu listasafna landsins.
Um 500 fyrirtæki frá 34 löndum sýndu á sýningunni allt það nýjasta í tækni og afurðum á sviði fiskveiða og sjávarútvegs, svo sem hönnun og smíði fiskiskipa og tæknibúnað af öllu tagi til fiskveiða- og vinnslu
