Síðdegistónleikar í Salnum
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gunnar Guðbjörnsson tenór, og Viðar Gunnarsson bassi, flytja íslensk sönglög á fjórum síðdegistónleikum í Salnum í lok október og í nóvember. Slíkir síðdegistónleikar voru á dagskrá Salarins fyrir nokkrum árum og nutu mikilla vinsælda.
Troðfullt var á alla tónleikana enda kjörið að kíkja við í Salnum á leið heim úr vinnu og njóta góðs flutnings tónlistar.
Blaðað verður í safni íslenskra einsöngslaga og flutt lög eftir meðal annars Sigvalda Kaldalóns, Sigfús Halldórsson, Árna Thorsteinsson, Emil Thoroddsen, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson, Sigfús Einarsson, Árna Björnsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Karl O. Runólfsson og ýmsa fleiri.
Yfirskrift tónleikanna er: ÍSLENSKT? JÁ TAKK!
Fyrstu tónleikarnir verða næstkomandi miðvikudag kl. 17:30 en þá mun Sveinn Dúa stíga á svið. Við slaghörpuna situr Jónas Ingimundarson og Dr. Bjarki Sveinbjörnsson kynnir efni tónleikanna.
Miðaverð á staka tónleika er 1.500 kr. Eins er hægt að kaupa áskrift á alla tónleikana fjóra á aðeins 3.900 kr.
