Manuel Barrueco gítarleikari með tónleika í Salnum
Hinn heimskunni gítarleikari Manuel Barrueco verður með tónleika í Salnum miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20:00. Á efnisskránni má finna sellósvítu eftir Bach, Five Pieces eftir Piazzolla, auk verka eftir Ponce, Albéniz og Tárrega.
Barrueco er landsmönnum að góðu kunnur. Hann kom fram á Listahátíð Hafnarfjarðar í Hafnarborg árið 1993, sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1999 og einleikstónleikar hans í Salnum árið 2007 seldust upp á fáeinum dögum.
Í tengslum við tónleikana mun myndlistarmaðurinn Inga Elín (IngaElin.com) vera með sýningu á verkum sínum í forsal Salarins. Opnun sýningarinnar verður sama dag og tónleikarnir, miðvikudaginn 9. nóvember og mun tríóið ”Mojito” spila við opnun hennar. Tónleikagestum er boðið að skoða sýninguna.
Miðapantanir og sala fer fram á vef Salarinns (salurinn.is) og í síma 5 700 400. Miðaverð er 2.900 krónur.
