Fréttasafn

Frumsýnir glænýtt leikverk

15.11.2011

  • Leikfélag Kópavogs
    Leikfélag Kópavogs
    Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00.

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum.

Hér segir frá systkinum sem leggja á Heiðina þegar allra veðra er von, fleiri reynast vera á sveimi á sama tíma. Fólk hittist eða fer á mis og allra bíða margvísleg örlög.

Níu leikarar taka þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Grímu Kristjánsdóttur. Sýningar eru í Leikhúsinu, Funalind 2, og hefjast kl. 20.00.

Miðaverð er 1.000 kr. og miðapantanir eru í midasala@kopleik.is eða í síma 554-1985.

Leikfélag Kópavogs.