Fjallað um Mozart í Tónlistarsafni Íslands
Leikskólabörn í Kópavogi og í Garðabæ urðu margs fróðari um austurríska tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart í Tónlistarsafni Íslands í dag en safnið í samvinnu við Töfrahurðina stendur fyrir þessari fræðslu. Guðmundur Elías Knudsen leikari túlkaði Mozart við mikla hrifningu barnanna.
Leikarinn sagði sögur af Mozart og fór einnig yfir sögu íslenskrar tónlistar.
Auk þess voru flutt Alla turga, aría úr Töfraflautunni og fleiri verk eftir Mozart í flutningi Guðríðar St. Sigurðardóttur píanóleikara og Valdísar Gregory sópransöngkonu.
Tónlistarsafn Íslands er við Hábraut 2 í Kópavogi og er opið alla daga frá kl. 10:00 til 16:00.
