Fréttasafn

Áramótabrenna við  Smárahvammsvöll

28.12.2011

  • Áramótabrenna
    Áramótabrenna
    Kópavogsbær og Breiðablik standa saman að áramótabrennunni við Smárahvamm í ár.

Áramótabrenna verður eins og undanfarin ár í Kópavogsdalnum við Smárahvammsvöll á gamlárskvöld. Kveikt verður í brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýning kl. 21:10.

Breiðablik og Kópavogsbær standa saman að brennunni.

Fólki er bent á að halda sig í öruggri fjarlægð frá brennunni, klæða sig eftir veðri og skilja flugeldana eftir heima.