Fréttasafn

Ljóðahátíð í Salnum á laugardag

16.1.2012

  • Jón úr Vör
    Jón úr Vör
    Steinunn Helgadóttir, myndlistarmaður og ljóðskáld, hlaut á síðasta ári Ljóðstaf Jóns úr Vör. Hér er hún með Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs.

Verðlaun verða veitt í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör í Salnum laugardaginn 21. janúar og hefst dagskráin klukkan 16:00. Þar verða einnig veitt verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Kópavogsbúar og aðrir ljóðaunnendur eru hjartanlega velkomnir.

Nálægrt 350 l jóð bárust í ljóðasamkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör og nemendur úr fjórum grunnskólum Kópavogs sendu ljóð í grunnskólakeppnina. Þetta er í fyrsta sinn sem slík grunnskólakeppni er haldin.

Þetta er hins vegar í ellefta sinn sem verðlau eru veitt í keppninni sem kennd er við Jón úr Vör.

Í dómnefnd eru þau: Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur, Sigurður Pálsson rithöfundur og Gerður Kristný rithöfundur.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica