Hvíldarbekkir á gönguleiðum aldraðra
Verkefnið sem ber yfirskriftina „Að brúka bekki“ var kynnt í dag, á afmælisdegi Kópavogs, og genginn var stuttur hringur við félagsmiðstöðina Gjábakka undir leiðsögn Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra, Kristjönu H. Guðmundsdóttur, formanns Félags eldri borgara í Kópavogi og Héðins Jónssonar, formanns Félags sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu.
Gönguleiðirnar við félagsmiðstöðvarnar þrjár, Gjábakka, Boðann og Gullsmára eru um eins til eins og hálfs kílómetra langar og er miðað við að bekkirnir séu á 150 til 200 metra millibili. Bærinn fjármagnar bekkina en þrír aðrir aðilar keyptu auk þess fjóra bekki, Toyota, Reynir bakari og Félag eldri borgara í Kópavogi.
Stefnt er að því að áfram verði unnið að verkefninu og tengja gönguleiðirnar með bekkjunum við nærliggjandi verslanir og útivistarsvæði.
