Fréttasafn

Jazz- og blúshátíð í Kópavogi

22.5.2012

Hin árlega jazz- og blúshátíð í Kópavogi hefst með tónleikum í Digraneskirkju fimmtudaginn 24. maí kl. 16:00. Að venju er hátíðin fjölbreytt en hún er styrkt með framlagi úr lista- og menningarsjóði Kópavogsbæjar. Hápunkturinn er laugardaginn 2. júní en þá fara fram tónleikar í Salnum. Hátíðinni lýkur 3. júní

Þeir sem koma fram á tónleikunum í Salnum eru: Sigurður K. Sigurðsson, Valgarður Guðjónsson, Óttar Felix, Sunna Gunnlaugs, Scott Mclemore, Gunnar Hrafnsson og Björn Thoroddssen. Sá síðarnefndi hefur haft veg og vanda að hátíðinni undanfarin ár.

Miðvikudaginn 30. maí eru tónleikar í Gullsmára kl. 14:00
Fimmtudaginn 31. maí eru tónleikar í Íslandsbanka, Digranesvegi kl. 14:00
Föstudaginn 1. júní eru tónleikar í Molanum kl. 20:00.
Laugardaginn 2. júní eru tónleikar í Molanum og Tónlistarsafni Íslands kl. 14:00
Um kvöldið 2. júní eru tónleikar í Salnum. Sjá nánar á vef Salarins.
Sunnudaginn 3. júní eru tónleikar í Digraneskirkju kl. 20:00.