Tónleikar til heiðurs Jóni Þórarinssyni
Söngtónleikar til heiðurs tónskáldinu Jóni Þórarinssyni verða haldnir í Salnum, sunnudaginn 16. september kl. 16:00. Jón Þór féll frá fyrr á þessu ári.
Söngvararnir Auður Gunnarsdóttir, sópran, Bergþór Pálsson, bariton, og Gunnar Guðbjörnsson, tenór, ásamt píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni flytja sönglög Jóns Þórarinssonar sem eru okkur öllum kær.
Lög á borð við Fuglinn í fjörunni, Það vex eitt blóm fyrir vestan, Of Love and Death, Íslenskt vögguljóð á hörpu, Nú legg ég augun aftur og Jeg elsker dig eru meðal laga á efnisskránni.
Tónleikarnir spanna feril hans sem tónskálds og útsetjara en nokkur lög á efnisskráinni eru í hans útsetningu. Sveinn Einarsson, leikstjóri og rithöfundur, mun flytja ávarpsorð í upphafi tónleikanna og karlakórinn Fóstbræður verður sérstakur gestur á tónleikunum.
Jón Þórarinsson fæddist 13. september 1917 og lést 94 ára að aldri í febrúar á þessu ári. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og hjá Paul Hindemith við Yale háskólann auk þess að sækja sumarnámskeið við Julliardskólann í New York.
Jón vann fjölmörg verkefni á sviði tónlistar á Íslandi. Hann var yfirkennari við Tónlistarskólann í Reykjavík um ellefu ára skeið, yfirmaður lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins frá 1968 til 1979 og átti mikinn þátt í því að koma Sinfóníuhljómsveit Íslands á laggirnar en hann var fyrsti stjórnarformaður sveitarinnar, síðar framkvæmdastjóri og stjórnarmaður.
Jón var öflugt tónskáld og samdi fjölda kammer- og söngverka. Á tónleikunum nú á sunnudaginn verður megin áhersla á þau sönglög sem Jón samdi og lifa með þjóðinni.
Nánari upplýsingar eru á vef Salarins.

