Fyrirsagnalisti
Verið er að dreifa nýjum bláum endurvinnslutunnum til allra Kópavosbúa. Þar með verður Kópavogsbær fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að dreifa slíkum tunnum til allra íbúa. Gert er ráð fyrir því að nýjar tunnur verði komnar við hvert heimili í byrjun júní.
Menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, lýkur í dag, laugardaginn 12. maí, en hún hefur staðið yfir frá 4. maí. Fjölbreytt dagskrá er í boði en hana má sjá nánar á vef hátíðarinnar,
kopavogsdagar.is. Fjölmargir hafa tekið þátt í hátíðinni. Markmið hennar er ekki síst að kynna það fjölbreytta menningarstarf sem fram fer í bænum allan ársins hring.
Félagsmiðstöðvahátíð unglinga í Kópavogi fer fram við félagsmiðstöðina Kjarnann í Kópavogsskóla í dag og hefst
kl. 17:00.
Dagsráin er
fjölbreytt og lifandi allt til kl. 22:00 í kvöld.
Íbúar Kópavogs stíga stórt og mikilvægt skref í sorpflokkun á morgun, miðvikudag, þegar hafist verður handa við að dreifa nýjum bláum endurvinnslutunnum til bæjarbúa. Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, afhendir fyrstu bláu tunnuna til Guðrúnar Benediktsdóttur, íbúa í Nónhæð.
Kópavogsbær óskar eftir því að kaupa einstaklingsíbúðir, tveggja herbergja og litlar þriggja og fjögurra herbergja, í Kópavogi. Æskilegt er að íbúðirnar séu nýlegar og í góðu ástandi. Íbúðir í byggingu koma einnig til greina.