Tilkynningar

Fyrirsagnalisti

Aðventuhátíð í Kópavogi - 23.11.2011

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin, laugardaginn 26. nóvember, á Hálsatorgi og í nærliggjandi menningarstofnunum. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsgerð, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa.

bókasafn

Skólasetning 22. ágúst - 17.8.2011

Skólasetning grunnskóla Kópavogs fer fram 22 ágúst næstkomandi.

straetisvagn

Breytingar á akstri strætó þann 17. júní - 16.6.2011

Akstur allra leiða Strætó bs. á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður samkvæmt laugardagsáætlun. Á ákveðnum leiðum verður ekið lengur fram á kvöld auk þess sem á sömu leiðum verður akstur tíðari eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði.

barnaborn

Vilt þú gæta barna á eigin heimili? - 3.5.2011

Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir dagforeldrum til starfa í Kópavogi. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en félagsþjónustan hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra og ráðgjöf við dagforeldra og foreldra.

sumargulblom

Opnunartími um páska - 19.4.2011

Bæjarskrifstofum Kópavogs verður lokað um páskahelgina. Bæjarstarfsmenn óska bæjarbúum gleðilegs sumars og góðra páska.

trjamynd

Vorhreinsun lóða í Kópavogi - 8.4.2011

Árviss vorhreinsun lóða í Kópavogi er nú að hefjast en þá taka allir höndum saman, bæjarbúar og bæjarstarfsmenn, um að hreinsa og fegra bæinn. Bæjaryfirvöld hvetja því íbúa Kópavogs til að hreinsa lóðir sínar.

gerdarsafn

Aldraðir, öryrkjar og námsmenn fá frítt í Gerðarsafn - 6.4.2011

Aldraðir, öryrkjar og námsmenn fá frítt í Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs gegn framvísun skírteinis. Gildir sú ákvörðun frá og með 7. apríl.

Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave - 25.3.2011

Þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 verður haldin laugardaginn 9. apríl 2011.

Kópavogsbær leigir út matjurtagarða - 23.3.2011

Kópavogsbær hefur um langt árabil leigt út matjurtagarða, svokölluð garðlönd, og hefur sú starfsemi verið i höndum garðyrkjustjóra.

straetomynd

Akstur á leið 28 í Kópavogi breytist - 15.3.2011

Breytingar verða gerðar á akstri Strætó þann 27. febrúar. Strætó mun frá þeim tíma ljúka akstri klukkutíma fyrr öll kvöld og hefja akstur tveimur klukkustundum síðar á laugardögum.

Um 600 ungmenni í Kópavogi verða ráðin í sumarstörf - 15.3.2011

Gert er ráð fyrir því að um 600 ungmenni frá sautján ára aldri verði ráðin í sumarstörf hjá Kópavogsbæ í sumar.

image2

Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir næsta skólaár er að hefjast - 1.3.2011

Innritun 6 ára barna (fædd 2005) fer fram í grunnskólum Kópavogs mánudaginn 7. og þriðjudaginn 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Nánari upplýsingar má finna á vefjum skólanna.

Heimgreiðslur verða 25 þúsund á mánuði - 1.3.2011

Heimgreiðslur til foreldra barna frá sex mánaða til tveggja ára aldurs lækka úr 35 þúsund krónum í 25 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. febrúar 2011. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í desember. Kópavogur er eitt fárra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður heimgreiðslur.