Þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 verður haldin laugardaginn 9. apríl 2011.
Kópavogsbær hefur um langt árabil leigt út matjurtagarða, svokölluð garðlönd, og hefur sú starfsemi verið i höndum garðyrkjustjóra.
Breytingar verða gerðar á akstri Strætó þann 27. febrúar. Strætó mun frá þeim tíma ljúka akstri klukkutíma fyrr öll kvöld og hefja akstur tveimur klukkustundum síðar á laugardögum.
Gert er ráð fyrir því að um 600 ungmenni frá sautján ára aldri verði ráðin í sumarstörf hjá Kópavogsbæ í sumar.
Innritun 6 ára barna (fædd 2005) fer fram í grunnskólum Kópavogs mánudaginn 7. og þriðjudaginn 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Nánari upplýsingar má finna á vefjum skólanna.
Heimgreiðslur til foreldra barna frá sex mánaða til tveggja ára aldurs lækka úr 35 þúsund krónum í 25 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. febrúar 2011. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í desember. Kópavogur er eitt fárra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður heimgreiðslur.