24. desember Lokað
27. desember Kl. 10.00-16.00
28. desember Kl. 8.00-15.00
31. desember Lokað
2. janúar 2012 Kl. 10.00-16.00
Hæfingarstöðin Fannborg 6 í Kópavogi tekur að sér að vinna ýmis konar verkefni fyrir fyrirtæki. Má þar nefna verkefni á borð við að líma merkimiða á brúsa, umslög, poka eða blöð. Á hæfingarstöðinni vinnur fólk með ýmsa fötlun ásamt fagmenntuðu fólki og stuðningsfulltrúum.Hæfingarstöðin er nú þegar í samstarfi við mörg fyrirtæki t.d. Húsasmiðjuna, Svansprent og Kórund.
Opnunartími sundlauga Kópavogs er sem hér segir um jól og áramót: Aðfangadag, 24. desember kl. 08:00 - 12:00
Jóladag, 25. desember LOKAÐ
Annan í jólum, 26. desember LOKAÐ
Gamlársdag, 31. desember kl. 08:00 - 12:00
Nýársdag, 1. janúar LOKAÐ
Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði. Umsóknum skal skila fyrir 14. janúar 2013. Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í bænum. Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum og listhópum sem geta sýnt fram á gildi starfs síns fyrir menningarlífið í bænum.
Þegar þörf er á er unnið að snjóhreinsun, söltun eða söndun gatna og göngustíga nær allan sólarhringinn. Er það gert til að tryggja öryggi og til að íbúar og aðrir komist leiðar sinnar.
Félagsmiðstöðvar ungmenna í Kópavogi taka á móti gestum og gangandi miðvikudaginn 7. nóvember frá kl. 18:00 og fram á kvöld. Allar félagsmiðstöðvar á Íslandi eru með opið hús þennan dag.
Opinn fundur með lögregluyfirvöldum í Kópavogi verður haldinn í Kópavogsskóla, á morgun þriðjudaginn 6. nóvember, kl. 16:00.
Skipulagsnefnd Kópavogs boðar til kynningarfundar með íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í Kópavogi þar sem kynnt verða drög að nýju aðalskipulagi fyrir bæinn. Fundurinn verður haldinn í samkomusal Hörðuvallaskóla við Baugakór 38, fimmtudaginn 1. nóvember nk. kl. 17:00 til 18:30.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa halda áfram í nóvember en þeir verða með viðtalstíma á fimmtudagskvöldum á bæjarskrifstofum Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð frá kl. 18:00 til 19:00.
Að venju verða upplýsingar um kjörsókn í Kópavogi birtar hér á vef Kópavogsbæjar í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag, laugardaginn 20. október. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og verða tölur um kjörsókn birtar á klukkutíma fresti. Kjörstöðum verður lokað kl. 22:00.
Tveir kjörstaðir verða í Kópavogi í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer nk. laugardag. Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar austan Reykjanesbrautar, að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi, kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12.
Kjörskrá í Kópavogi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október nk. liggur frammi í þjónustuveri bæjarskrifstofa Kópavogs, Fannborg 2, frá og með 10. október. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrána ber að snúa sér með þær til bæjarlögmanns.
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust frá klukkan 9:00 mánudaginn 8. október í Hvömmum, Tungum og á svæði frá Álfhólsvegi að Digranesvegi milli Skólatraðar og Meltraðar.
Bæjarfulltrúar Kópavogsbæjar verða með viðtalstíma á fimmtudagskvöldum fram í desember á bæjarskrifstofum Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð frá kl. 18:00 til 19:00.
Óskað er eftir tilboðum í lóðina að Hólmaþingi 7 í Kópavogi. Þetta er úrvalslóð á einum besta stað í bænum. Hún er í almennri sölu á fjórum fasteignasölum, Remax Lind, Remax Alpha, Eignamiðlun og Eignaborg.
Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst í öllum grunnskólum Kópavogs. Yfir fjögur þúsund börn setjast þá á skólabekk og þar af yfir þrjú hundruð í fyrsta sinn.
Þrír af fjórum gæsluleikvöllum í Kópavogi verður lokað frá og með deginum í dag 1. ágúst. Það þýðir að ekki verður lengur gæsla á leikvöllunum en foreldrum og dagforeldrum er heimilt að koma og dvelja með börnunum sínum þar ef þeir kjósa. Holtsvöllur við Borgarholtsbraut verður opinn til 10. ágúst og sama fyrirkomulag gildir þar eftir þann tíma. Vellirnir hafa verið opnir í allt sumar en ávallt stóð til að þeim yrði lokað í ágúst.
Til stendur að halda Hamraborgarhátíðina 1. september næstkomandi en gert er ráð fyrir því að undirbúningur undir hátíðina hefjist í byrjun ágúst. Nánari upplýsingar um dagskrá og fleira verða settar hér á vef Kópavogsbæjar þegar nær dregur.
Pálmi Þór Másson, lögmaður og bæjarstjóri Álftaness, hefur verið ráðinn bæjarlögmaður í Kópavogi í námsleyfi Þórðar Clausen Þórðarsonar. Hann er ráðinn til eins árs.
Í Kópavogi verða tveir kjörstaðir í forsetakosningunum á laugardag, Í Kórnum, þar sem verða 6 kjördeildir og í Smáranum, þar sem verða 14 kjördeildir. Upplýsingar um kjörstjórn í Kópavogi verður birtar hér á vef Kópavogsbæjar með reglulegu millibili yfir daginn.
Bæjarstjórnarfundur fer fram samkvæmt venju þriðjudaginn 26. júní og hefst hann kl. 16:00 í bæjarstjórnarsalnum. Þetta er síðasti fundurinn fyrir sumarfrí og verða þeir því ekki haldnir í júlí og ágúst. Bæjarráð fer með vald bæjarstjórnar í sumarleyfi hennar.
Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum laugardaginn 30. júní næstkomandi. Með því að slá inn kennitölu kjósanda kemur upp nafn hans, lögheimili, sveitarfélag og upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Verið er að dreifa nýjum bláum endurvinnslutunnum til allra Kópavosbúa. Þar með verður Kópavogsbær fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að dreifa slíkum tunnum til allra íbúa. Gert er ráð fyrir því að nýjar tunnur verði komnar við hvert heimili í byrjun júní.
Íbúar Kópavogs stíga stórt og mikilvægt skref í sorpflokkun á morgun, miðvikudag, þegar hafist verður handa við að dreifa nýjum bláum endurvinnslutunnum til bæjarbúa. Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, afhendir fyrstu bláu tunnuna til Guðrúnar Benediktsdóttur, íbúa í Nónhæð.
Nú er hægt að skrá viðburði á Kópavogsdaga, menningarhátíð Kópavogs, með því að fara inn á kopavogsdagar.is. Menningarhátíðin stendur yfir frá 4. til 12. maí. Á menningartorfunni verður sérstök áhersla lögð á menningu og listir fyrir yngstu kynslóðina með yfirskriftinni: Ormadagar.
Bæjarskrifstofum Kópavogs verður lokað um páskana. Þær verða opnaðar aftur þriðjudaginn eftir páska kl. 10:00. Starfsfólk bæjarins óskar bæjarbúum gleðilegra páska.
Akstur vagna Strætó bs. um páskahátíðina verður með sama hætti og verið hefur síðustu ár. Á skírdag, fimmtudaginn 5. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Á föstudaginn langa, 6. apríl, verður enginn akstur.
Sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnafjörður og Garðabær hafa í sameiningu gert samning við Bolaöldur ehf. um móttöku á jarðefnum til landmótunar í Bolaöldum í hlíðum Vífilsfells í landi Ölfuss. Þar er námusvæði og með móttöku á jarðefnum er verið að endurheimta land í eldri námum. Ekið er að námusvæðinu frá Suðurlandsvegi til suðurs rétt vestan við Litlu - Kaffistofuna.
Af óviðráðanlegum orsökum hefur orðið breyting á auglýstum umsóknarfresti um sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2012. Umsóknarvefur verður opnaður miðvikudaginn 21. mars og verður tekið við umsóknum til sunnudagsins 15. apríl. Beðist er velvirðingar á þessu.
Bæjarráð hefur ákveðið fasta viðtalstíma með bæjarfulltrúum fram í maí. Fyrsti viðtalstíminn fór fram í gær en sá næsti verður 15. mars og stendur yfir frá kl. 18:00 til 19:00. Þá verður til viðtals bæjarfulltrúinn, Ómar Stefánsson.
Endurbætt útlit vefjar Kópavogsbæjar hefur nú litið dagsins ljós. Markmiðið er að hafa síðuna einfaldari og auðvelda bæjarbúum að finna upplýsingar hjá bænum. Íbúagáttin hefur til dæmis verið færð ofar á síðuna til hægri og umsóknir um störf hjá bænum eru neðst á síðunni.