Endurbætt útlit Kópavogsvefjarins
Endurbætt útlit vefjar Kópavogsbæjar hefur nú litið dagsins ljós. Markmiðið er að hafa síðuna einfaldari og auðvelda bæjarbúum að finna upplýsingar hjá bænum. Íbúagáttin hefur til dæmis verið færð ofar á síðuna til hægri og umsóknir um störf hjá bænum eru neðst á síðunni.
Um það bil ár er nú liðið frá því Kópavogsbær bætti Kópavogsvefinn og lífgaði upp á útlitið. Síðan þá hefur verið leitast við að gera enn betur enda er vefur þess eðlis að hann þarf að vera í sífelldri þróun.
Neðst á síðunni má finna myndasafn sem verður viðameira eftir því sem fram líða stundir og til gamans er þar líka breytileg skoðanakönnun á ýmsu því sem tengist starfsemi bæjarins.
Athygli er líka vakin á Facebook-síðu bæjarins en tengjast má henni með því að smella á slóðina allra neðst á síðunni til vinstri.
