Tilkynningar

Fyrirsagnalisti

bolaborg

Bolaöldur – móttaka jarðefna - 19.3.2012

Sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnafjörður og Garðabær  hafa í sameiningu  gert samning við Bolaöldur ehf. um móttöku á jarðefnum til landmótunar í Bolaöldum í hlíðum Vífilsfells í landi Ölfuss.  Þar er námusvæði og með móttöku á jarðefnum er verið að endurheimta land í eldri námum. Ekið er að námusvæðinu frá Suðurlandsvegi til suðurs rétt vestan við Litlu - Kaffistofuna.

Breytingar á auglýstum umsóknarfresti - 16.3.2012

Af óviðráðanlegum orsökum hefur orðið breyting á auglýstum umsóknarfresti um sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2012. Umsóknarvefur verður opnaður miðvikudaginn 21. mars og verður tekið við umsóknum til sunnudagsins 15. apríl. Beðist er velvirðingar á þessu.

Viðtalstímar með bæjarfulltrúum - 2.3.2012

Bæjarráð hefur ákveðið fasta viðtalstíma með bæjarfulltrúum fram í maí. Fyrsti viðtalstíminn fór fram í gær en sá næsti verður 15. mars og stendur yfir frá kl. 18:00 til 19:00. Þá verður til viðtals bæjarfulltrúinn, Ómar Stefánsson.