Tilkynningar

Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave

25.3.2011

Þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 verður haldin laugardaginn 9. apríl 2011.

Í Kópavogi verða tveir kjörstaðir, Í Kórnum og í Smáranum. Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofum Kópavogs, Fannborg 2, frá og með 30. mars. Ef einhverjar athugasemdir eru við hana ber að snúa sér með þær til bæjarlögmanns.

Upplýsingar um framkvæmd kosninganna eru á kosningavef innanríkisráðuneytisins. 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 16. mars. Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.

Upplýsingaveita fyrir kjósendur um kjörstað og kjördeild.

Kjörstaðir í Kópavogi eru tveir.

 

Yfirkjörstjórn Kópavogs – aðsetur á kjördag: Íþróttahúsið Smárinn s. 510-6412

Dalla Ólafsdóttir, formaður         

Helgi Jóhannesson                                         

Snorri Tómasson                             

Hverfiskjörstjórn Smárans – aðsetur á  kjördag: Íþróttahúsið Smárinn s. 510-6412

Bragi Þór Thoroddsen

Haukur Guðmundsson

María Marta Einarsdóttir              

Hverfiskjörstjórn Kórsins – aðsetur á kjördag: Íþróttahúsið Kórinn s.  517-1187

Ásdís Ólafsdóttir                              

Una Björg Einarsdóttir                   

Gísli Rúnar Gíslason                        

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica