Aldraðir, öryrkjar og námsmenn fá frítt í Gerðarsafn
Aldraðir, öryrkjar og námsmenn fá frítt í Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs gegn framvísun skírteinis. Gildir sú ákvörðun frá og með 7. apríl.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 11:00 til 17:00. Aðgangseyrir er 500 krónur alla daga nema miðvikudaga, þá er ókeypis.
Gerðarsafn er framsækið listasafn, með megináherslu á nútíma- og samtímalist, í glæsilegri byggingu á besta stað í Kópavogi. Safnið er reist í minningu Gerðar Helgadóttur myndhöggvara.
Á hverju ári eru haldnar um 20 sýningar af fjölbreyttu tagi, innlendar sem erlendar. Þrír sýningarsalir eru í safninu, tveir á efri hæð og einn á neðri hæð. Þar er einnig björt og notaleg kaffistofa.
Listasafnið var opnað í aprílmánuði 1994 í húsi sem Benjamín Magnússon teiknaði.

