Breytingar á akstri strætó þann 17. júní
Akstur allra leiða Strætó bs. á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður samkvæmt laugardagsáætlun. Á ákveðnum leiðum verður ekið lengur fram á kvöld auk þess sem á sömu leiðum verður akstur tíðari eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði.
Á leiðum 1, 3, 4, 6, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 19, 22, 24, 28, 33, 34 og 35 mun hálftíma tíðnin halda áfram eftir kvöldmat og munu vagnar á þeim leiðum aka lengur en hefðbundið er samkvæmt áætlun. Síðustu ferðir frá Hlemmi og miðbænum verða farnar um kl. 23:00.
Bæði Hverfisgata og Lækjargata verða lokaðar fyrir umferð á 17. júní og því breytist akstur strætó um miðbæinn töluvert. Biðstöðvar á svæðum þar sem akstur verður bannaður verða merktar óvirkar. Tímabundin biðstöð verður sett upp við Geirsgötu, gegnt Kalkofnsvegi. Farþegar eru hvattir til að sækja ítarlegar upplýsingar um miðbæjarakstur strætó á 17. júní á straeto.is.
Akstursleiðir að og frá Hlemmi og miðbæ:
Kl.09:00 til kl.18:00
Leiðir 1,3, 6, 11, 12 og 13 sem aka frá Hlemmi í vestur: Snorrabraut – Sæbraut – Geirsgata – Mýrargata – Ánanaust - Hringbraut.
Að Hlemmi aka sömu leiðir: Hringbraut - Ánanaust – Mýrargata - Ægisgata – Geirsgata (með biðstöð í aðrein að Kalkofnsvegi) – Sæbraut - Snorrabraut.
Leið 14 ekur að og frá Granda um eftirtaldar götur: Ánanaust, Hringbraut, Snorrabraut, Hlemmur.
Kl. 18:00 til kl. 23:00 – þ.e. klukkustund lengur en leiðabók segir
Leiðir 1,3, 6, 11, 12, 13 og 14 aka frá Hlemmi suður Snorrabraut - Hringbraut - Sóleyjargötu - Fríkirkjuveg – Vonarstræti – Suðurgötu.
Að Hlemmi aka sömu leiðir Hringbraut - Suðurgötu – Skothúsveg (biðstöð við Hljómskála) - Sóleyjargötu - Hringbraut - Snorrabraut, Hlemmur.
Allar nánari upplýsingar má fá á www.straeto.is og í þjónustusíma Strætó bs., 540 2700.

