Tilkynningar

Sorphirðudagatal fyrir árið 2012

11.1.2012

Dagatal með sorphirðudögum í Kópavogi út júní 2012 hefur verið birt á vef bæjarins. Litapunktar á dagatalinu sýna á hvaða dögum tæmt verður. Enn fremur eru endurvinnslustöðvar Sorpu og grenndargámar merktir inn á kortið.

Í byrjun maí hefst innleiðing á nýju sorphirðukerfi þar sem íbúar Kópavogsbæjar munu flokka í tvær tunnur, endurvinnanlegt og almennt sorp. Nýtt dagatal með breyttu fyrirkomulagi verður gefið út í maí.

Athugasemdir eða ábendingar skulu berast Áhaldahúsi Kópavogs í síma 5701660.

Sorphirðudagatal 2012.

Sorphirða á Nónhæð.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica