Tilkynningar

Umsókn um styrki úr lista- og menningarsjóði

13.1.2012

Menningar- og þróunarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði fyrir árið 2012. Umsóknir skulu berast fyrir 14. febrúar næstkomandi. Hlutverk sjóðsins er að efla lista- og menningarlíf í Kópavogi. Menningar- og þróunarráð bæjarins fer með stjórn sjóðsins.

Vakin er athygli á því að reglum sjóðsins var nýverið breytt svo þær mættu vera skýrari. Í reglunum segir m.a. að sjóðurinn skuli veita styrki til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana „til almennrar liststarfsemi eða verkefna sem eru í samræmi við stefnumörkun og áherslur bæjarins í lista- og menningarmálum.“

Við mat á umsóknum verður m.a. horft til listræns þáttar verkefnisins og hvernig það geti auðgað menningarlíf bæjarins. Þá verður verkefnum sem fela í sér frumsköpun og frumflutning veitt brautargengi.

Umsóknareyðublöð fást á vef Kópavogsbæjar eða í þjónustuveri bæjarins, Fannborg 2. Umsóknum skal skilað til: Lista- og menningarsjóður, Fannborg 2, 200 Kópavogur.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica