Bolaöldur – móttaka jarðefna
Sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnafjörður og Garðabær hafa í sameiningu gert samning við Bolaöldur ehf. um móttöku á jarðefnum til landmótunar í Bolaöldum í hlíðum Vífilsfells í landi Ölfuss. Þar er námusvæði og með móttöku á jarðefnum er verið að endurheimta land í eldri námum. Ekið er að námusvæðinu frá Suðurlandsvegi til suðurs rétt vestan við Litlu - Kaffistofuna.
Hvað má losa?
Eingöngu er heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni s.s. mold, möl og grjót. Einnig má losa steinsteypubrot sem búið er að klippa af öll útistandandi járn og hreinsa af öðrum efnum s.s. einangrun, pappa og klæðningu.
Ekki er heimilt að losa lífrænan úrgang eins og húsdýraskít og landbúnaðarhrat, eins og það er orðað í starfsleyfi.
Starfsleyfi: Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur gefur út starfsleyfi fyrir Bolaöldur ehf. vegna móttöku á jarðefnum til landmótunar. Skoða starfsleyfi. Starfsleyfi er dagsett 18. apríl 2011 og gildir til 18. mars 2023.
Opið er á virkum dögum
Mánudaga – fimmtudaga kl. 8.00 – 12.00 og 12.30 – 17.00
Föstudaga kl. 8.00 – 12.00 og 12.30 – 16.00
Umsjón og símar:
Bolaöldur ehf. , sem eru í eigu Fossvéla ehf (sjá vef www.fossvelar.is)
Skrifstofa: 482-1990
Verkstjóri: 891-9588
NÁMA OG TIPPUR: 892-8505
Tölvupóstur: fossvelar@simnet.is
