Heimgreiðslur verða 25 þúsund á mánuði
Heimgreiðslur til foreldra barna frá sex mánaða til tveggja ára aldurs lækka úr 35 þúsund krónum í 25 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. febrúar 2011. Þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í desember. Kópavogur er eitt fárra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður heimgreiðslur.
Heimgreiðsla er bundin því að barn sé með lögheimili og aðsetur í Kópavogi. Einstæðir foreldrar eiga rétt á heimgreiðslu þegar barn nær 6 mánaða aldri en foreldrar í hjúskap eða sambúð þegar barn nær 9 mánaða aldri.
Heimgreiðsla fellur niður þegar barn nær tveggja ára aldri eða fyrr ef það hefur dvöl á leikskóla eða er í gæslu hjá dagforeldri sem fær niðurgreiðslu frá bæjarsjóði Kópavogs.
