Leit að fundargerðum

Félagsmálaráð - 1337

Haldinn í í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð,
18.9.2012 og hófst hann kl. 15:30
Fundinn sátu: Sigurjón Örn Þórsson formaður, Guðríður Arnardóttir aðalfulltrúi, Guðbjörg Sveinsdóttir aðalfulltrúi, Sverrir Óskarsson aðalfulltrúi, Ásdís Helga Jóhannesdóttir aðalfulltrúi, Helga Guðrún Jónasdóttir aðalfulltrúi, Halla Halldórsdóttir varafulltrúi, Aðalsteinn Sigfússon félagsmálastjóri og Rannveig María Þorsteinsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Rannveig María Þorsteinsdóttir, Verkefnastjóri
Dagskrá: 
Almenn erindi
1.0907157 - Tölulegar upplýsingar frá velferðarsviði um stöðu mála, mánaðarlegar skýrslur
Lagt fram til kynningar.
Barnavernd
2.1207532 - Einstaklingsmál. Samstarfsverkefni við barnavernd
Lagt fram bréf sem sent var til Sambandsins.
 
Félagsmálaráð lýsir áhyggjum af stöðu málsins og tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð starfsmanna. Ráðið vísar málinu til bæjarstjóra. 
 
Anna Eygló Karlsdóttir yfirmaður barnaverndar og Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sátu fundinn undir þessum lið.
Ráðgjafa og íbúðadeild
3.1201037 - Teymisfundir 2012
Lagt fram til kynningar.
 
Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
4.1209150 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun
Skráð í trúnaðarbók.
Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
5.1209242 - Staða fjárhagsaðstoðar
Lagt fram til kynningar.
 
Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
6.1209240 - Atvinnutorg. Staðan í september 2012
Lagt fram til kynningar.
 
Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
Þjónustudeild fatlaðra
7.1209244 - Húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk
Lagt fram til kynningar.
 
Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.
Önnur mál
8.1209300 - Úrræði fyrir atvinnulausa
Sverrir leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:
 
Óskað er eftir upplýsingum um öll þau úrræði og verkefni sem standa atvinnulausum til boða í Kópvogi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:55