Fundir
Fundir bæjarstjórnar
Reglulegir fundir bæjarstjórnar eru haldnir annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar kl.16:00 nema í júlí, ágúst og desember þegar þeir eru aðeins þriðja þriðjudag mánaðarins. Fundir bæjarstjórnar fara fram að Fannborg 2, 1. hæð. Þeir eru að jafnaði opnir almenningi.
Upplýsingar um afgreiðslu mála gefur bæjarritari á skrifstofu eða í síma 570 1500, kl.11:00 til 12:00 hvern virkan dag. Aðsetur hans er að Fannborg 2. Fundunum er útvarpað á F 98,3 og einnig er hægt að hlusta á fundina í beinni hér á vefnum.
Fundir bæjarráðs
Fundir bæjarráðs eru að jafnaði haldnir vikulega,
á fimmtudögum kl. 15:00 í sal bæjarráðs að Fannborg 2, 4. hæð. Fundirnir eru ekki opnir almenningi.
Upplýsingar um afgreiðslu mála gefur bæjarritari á skrifstofu eða í síma 570 1500, kl.11:00 til 12:00 hvern virkan dag. Aðsetur hans er að Fannborg 2, en einnig eru fundargerðir bæjarráðs birtar hér á vefnum.
Fundir nefnda
Fundatími hinna ýmsu nefnda bæjarins er breytilegur. Sumar nefndir hafa fastan fundartíma en aðrar ekki. Upplýsingar um fundartíma nefnda má fá hjá viðkomandi sviðum eða deildum bæjarins.
Fundargerðir eru birtar með fyrirvara um staðfestingu bæjarráðs og bæjarstjórnar varðandi afgreiðslu mála.
Hér er hægt að finna hljóðupptökur af fundum bæjarstjórnar.
