Auglýsingar og auglýsingastyrkir
Á hverju ári veitir Kópavogsbær auglýsingastyrki vegna fjölmargra verkefna, aðallega innan bæjarfélagsins. Tilgangurinn er að styðja við góð málefni sem byggja á styrkjum, frjálsum framlögum og sjálfboðastarfi. Ómögulegt er að verða við öllum slíkum beiðnum. Því eru hér birtar reglur til viðmiðunar:
Til skoðunar getur komið að veita auglýsingastyrki með birtingu á merki bæjarins vegna eftirtalinna málefna:
- Heimili, fjölskylda, forvarnir, uppeldismál.
- Menningarstarfsemi, íþróttastarfsemi, æskulýðsmál.
- Heilsa og heilbrigði.
Ef styrktarbeiðnin fellur að styrktarstefnu Kópavogsbæjar skal senda umsóknir með því að smella á slóðina hér.
Rétt er að undirstrika að ekki er sjálfkrafa hægt að búast við því að auglýsingastyrkir verði veittir.
Öll styrktarerindi eru tekin fyrir og verður svarað með tölvupósti eigi síðar en 2 vikum eftir að erindi berst.
Til að geta styrkt sem flest málefni birtum við hér þau viðmiðunarverð sem Kópavogsbær greiðir fyrir lógóbirtingar (sem falla að styrkjastefnunni):
Lógó í blað/tímarit sem dreift er í 5.000-15.000 eintökum kr. 3.000.
Lógó í blað/tímarit sem dreift er í 15.000 eða fleiri eintökum kr. 5.000.
Auglýsingar
Gerður er skýr greinarmunur á auglýsingum og styrkjum. Þar gilda allt önnur lögmál en við styrki. Þar ráða markaðsleg sjónarmið, svo sem snertiverð, dreifing, tíðni og dekkun. Öll tilboð um auglýsingar er hægt að senda með því að smella á slóðina hér.
Allar auglýsingabeiðnir eru teknar fyrir og verður svarað eigi síðar en 2 vikum eftir að erindi berst.
Umsóknir um styrki og auglýsingar skal senda með því að smella hér.
